Bandalag íslenskra bílablaðamanna hefur valið níu bíla sem keppa til úrslita um Bíl ársins 2015 á Íslandi. Alls voru 29 bílar í forvalinu. Auk þess að velja bíl ársins er þessum bílum skipt í þrjá flokka, flokk minni fólksbíla, flokk stærri fólksbíla og loks flokk jeppa og jepplinga.

Eftirtaldir bíla lentu í þessum þremur flokkum:

Í flokki minni fólksbíla:

  • Opel Adam
  • Renault Captur
  • Toyota Aygo

Í flokki stærri fólksbíla:

  • Peugeot 308
  • VW Golf GTD
  • Mercedes Benz C-class

Í flokki jeppa og jepplinga:

  • Porsche Macan
  • BMW X5
  • Nissan Qashqai

Lokaumferð í valinu fer fram á nk. laugardag. Fimmtudaginn 2. október kemur í ljós hvaða bíll sigraði í hverjum flokki og sá stigahæsti í öllum flokkunum þremur hlýtur sæmdarheitið Bíll ársins 2015.