Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2016 var 651. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Þjóðskrá.

Heildarvelta kaupsamninga nam 30 milljörðum króna og meðalupphæð var 46,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli nam 18,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4,9 milljörðum króna.

Þegar febrúar 2016 er borinn saman við febrúar 2015 fjölgar kaupsamningum um 49,3% og velta eykst um 90,7%. Í febrúar 2015 var 436 kaupsamningum þinglýst, velta nam 15,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 36,1 milljón króna.

Þegar febrúar 2016 er borinn saman við janúar 2016 fjölgar kaupsamningum um 19,9% og velta eykst um 23,1%. Í janúar 2016 var 543 kaupsamningum þinglýst, velta nam 24,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 44,9 milljónir króna.