Ekkert fékkst upp í rúmlega 750 milljóna króna almennar kröfur í þrotabú Motormax. Lýstar kröfur námu 907,8 milljónum króna. Skiptum lauk upphaflega í byrjun árs en þau voru tekin upp. Fram kemur í Lögbirtingablaðinu í dag að skiptum laun 3. apríl síðastliðinn. Greiddar hafi verið veðkröfur upp á 155,3 milljónir króna. Þetta merkir að kröfuhafar hafi fengið 17% krafna greiddar en þurft að afskrifa rúm 82% af kröfum sínum á félagið.

Motormax hluti af fyrirtækjasamstæðu Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. Það var úrskurðað gjaldþrota 11. maí árið 2009. Verslun Mótormax seldi m.a. fjórhjól, götuhjól, sæþotur, hjólhýsi, húsbíla, fellihýsi, hraðbáta og annan mótorsportvarning.

Motormax hafði tekið erlent lán hjá Landsbankanum upp á 270 milljónir króna árið 2007. Skiptastjóri þrotabúsins hélt því hins vegar fram að lánið væri ekki í erlendri mynt heldur í íslenskum krónum með gengistryggingu við erlenda mynt. Landsbankinn var á öðru máli. Dómur féll í Hæstarétti í málinu í júní árið 2011 og var þar tekið undir kröfu þrotabúsins. Dómurinn hafði mikið fordæmisgildi þeim gengislánamálum sem eftir fylgdu.