Stjórn Borgunar hefur ákveðið að allir starfsmenn fyrirtækisins fái greidda launauppbót sem nemur 900.000 kr á hvern starfsmann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Borgun vill með þessu að starfsmenn njóti þess vaxtar og viðgangs sem orðið hefur á rekstri fyrirtækisins síðustu misseri.
Samkvæmt tilkynningunni hefur verið mikið álag á starfsmönnum Borgunar um nokkurt skeið, enda hefur fyrirtækið aukið verulega viðskipti sín á erlendum mörkuðum.