Borgarráð samþykkti í dag 92 tillögur meirihlutaflokka um hagræðingu í rekstri borgarinnar á næsta ári „upp á vel á annan milljarð króna“. Í tilkynningu borgarinnar segir að áfram sé gert ráð fyrir „fullri fjármögnun á framlínuþjónustu“.

Tilkynningin kemur í kjölfar þess að borgin birti árshlutauppgjör þar sem fram kemur að 11,1 milljarða króna halli hafi verið af rekstri A-hluta borgarinnar á fyrstu níu mánuðum ársins. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluti borgarinnar var jákvæð um 6,8 milljarða sem má einkum rekja til 20,5 milljarða matsbreytinga fjárfestingareigna hjá Félagsbústöðum.

Borgin segir að stefnt sé að því að rekstrarniðurstaða úr A-hluta verði orðin jákvæð frá og með árinu 2024. Samanlagt muni hagræðingartillögurnar draga úr útgjöldum sem nemur á annan milljarð króna.

Til viðbótar við fyrri ákvörðun

Í tilkynningu borgarráðs segir að tillögurnar séu í samræmi við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2023 sem kynnt var í byrjun nóvember. „Tillögurnar sem samþykktar voru í dag eru nánari útfærsla á aðgerðaáætlun um samdrátt í rekstrarkostnaði upp á að minnsta kosti einn milljarð króna sem kynnt var í fjárhagsáætlun.“

Þá komi þessar tillögur til viðbótar við þá ákvörðun um að draga saman í fjárfestingaráætlun, almennu aðhaldi í rekstri og að ekki verði ráðið í stöður sem losna nema brýn nauðsyn sé til.

„Aðgerðir í ráðningamálum eiga þó ekki við störf í framlínu, svo sem í skóla- og frístundaþjónustu og velferðarþjónustu. Óskað var eftir hugmyndum úr öllum málaflokkum um hvar mætti gera þjónustu skilvirkari og auka hagkvæmni í rekstri og eru þessar tillögur afrakstur þeirrar vinnu.“

Þessar breytingatillögur frá meirihluta Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar verða lagðar fyrir borgarstjórnarfund næstkomandi þriðjudag þar sem fram fara seinni umræður um fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir 2023.

Borgin muni vaxa út úr vandanum að sögn Dags

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir í tilkynningunni að þessar tillögur endurspegli þá stöðu sem sveitarfélög um land allt glími við eftir kórónuveirufaraldurinn. Viðbrögðin séu eðlileg og í samræmi við trausta fjármálastjórn.

„Við erum búin að liggja töluvert yfir þessu undanfarnar vikur og þetta er afraksturinn, 92 skynsamlegar hagræðingartillögur og umbótaverkefni þar sem við stöndum vörð um framlínuþjónustu og viðkvæma hópa,“ segir Dagur.

„Reykjavíkurborg hefur alltaf lagt sig fram um að vera snögg að bregðast við ytri aðstæðum og þetta er hluti af því. Borgin mun vaxa út úr þeim vanda sem sveitarfélögin eru að glíma við en um leið er mikilvægt að ríkið leiðrétti framlög í stórum málaflokkum þar sem lagaskyldur eru langt umfram þau framlög sem sveitarfélögunum eru tryggð.”