Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,4% í dag í 12,1 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,5% í 2,8 milljarða króna veltu en óverðtryggði hlutinn lækkaði lítillega í 9,3 milljarða króna viðskiptum.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði lítillega í dag í 300 milljóna króna viðskiptum.

Fram kemur í upplýsingum Gamma að hutabréfavísitala þess lækkaði jafnframt lítillega í dag í 400 milljóna króna viðskiptum.