Heildsölubakaríið Gæðabakstur hagnaðist um 93,2 milljónir króna á árinu 2016 samanborið við 88,2 milljónir frá árinu á undan. Rekstrartekjur félagsins námu 1.545 milljónum og jukust um 245 milljónir á milli ára. Framlegð var 600 milljónir króna miðað við 494 milljónir árið á undan. Handbært fé í lok árs nam 5 millj­ ónum og lækkaði um 89 milljónir frá árinu 2015.

Eignir félagsins námu 806 milljónum í árslok og jukust þær um 199 milljónir á milli ára. Skuldir félagsins voru 353 milljónir í lok árs og nam aukning á skuldum milli ára 167 milljónum króna. Eigið fé var 453 milljónir í árslok og eiginfjárhlutfall 56% sem er lækkun upp á 13 prósentustig milli ára. Eigendur félagsins eru Viska hf. sem á 80% eignarhlut og Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastjóri Gæðabaksturs, sem á 20% hlut.