Aflaverðmæti hefur dregist saman um 9,4% á tólf mánaða tímabili frá nóvember 2015 til október 2016, ef tekið er mið af saman tímabili árið áður. Aflaverðmæti á tímabilinu nam 137,1 milljarði króna.

Í október 2016 var aflaverðmæti íslenskra skipa rétt um 11 milljarðar króna - sem er samdráttur um 8% samanborið við október 2015. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu íslands um aflaverðmæti.

„Verðmæti botnfiskafla nam rúmum 7,8 milljörðum og dróst saman um 16% frá fyrra ári. Uppistaðan í verðmæti botnfiskaflans var þorskur en verðmæti hans nam tæpum 5,4 milljörðum sem er tæplega hálfum milljarði minna en í október 2015. Verðmæti uppsjávarafla jókst hins vegar á milli ára, nam rúmum 2,5 milljörðum sem er 67% meira en í október 2015. Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 40,5% og nam 520 milljónum króna í október. Aflaverðmæti skelfisks dróst saman um 50,8% og nam 114 milljónum samanborið við rúmar 231 milljónir í október 2015,“ er tekið fram í fréttinni.