Alls 24 flugfélög héldu uppi áætlunarflugi til og frá Keflavíkurflugvelli í júní. Eru flugfélögin þremur fleiri en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt talningu Túrista jókst þó flugumferðin töluvert meira eða um 20%.

Ferðafjöldin jókst um tæplega 500 ferðir frá því í júní á síðasta ári og má rekja helminginn til aukinna umsvifa WOW air. Icelandair bætti einnig töluvert við sig á meðan flugfélög eins og easyJet, og Airberlin drógu örlítið saman seglin.