Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 24. júní til og með 30. júní 2011 var 95. Þar af voru 69 samningar um eignir í fjölbýli, 22 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.554 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,9 milljónir króna.

Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár . Á Suðurnesjum var 7 samningum þinglýst og 13 á Akureyri. Á Suðurnesjum var heildarveltan 144 milljónir króna og um 240 milljónir á Akureyri.