Ávöxtun Lífeyrissjóðs bænda á árinu 2005 var 14,15% sem jafngildir 9,61% hreinni raunávöxtun. Hrein raunávöxtun árið 2004 var 7,13%. Helstu ástæður betri ávöxtunar en 2004 er sú að erlendir markaðir gáfu betur af sér og mikil hækkun varð á innlendum hlutabréfum.

Lítil ávöxtun varð hins vegar á ríkisskuldabréfum. Samkvæmt fjárfestingarstefnu sjóðsins 2006 skal samsetning eigna vera sem næst eftirfarandi hlutföllum: Skuldabréf með ríkisábyrgð 40%, önnur skuldabréf 25%, erlend hlutabréf 25% og innlend hlutabréf 10%. Heimilt er að leggja allt að 15% eigna inn á bundna innlánsreikninga.

Í árslok fékk sjóðurinn sérstakt framlag úr ríkissjóði og bætti það stöðu hans til muna.

Gerð var tryggingafræðileg úttekt á sjóðnum miðað við árslok 2005. Endurmetin hrein eign sjóðsins miðað við 3,5% ávöxtun nemur í árslok 2005 18.752 milljónum króna og verðmæti framtíðariðgjalda 4.160 milljónir króna eða samtals 22.912 milljónir kr. Heildarskuldbindingar nema 21.911 milljónum kr. Sjóðurinn á því 1.001 milljónir kr., eða 4,6%, umfram heildarskuldbindingar. Áfallnar skuldbindingar nema 16.184 milljónum króna kr. Hagnaður miðað við áfallnar skuldbindingar er því 2.568 milljónum kr., eða 15,9%. Í árslok 2004 voru eignir 9,7% lægri en heildarskuldbindingar og 5,7% lægri en áfallnar skuldbindingar eins og kemur fram í frétt á vef Landssambands lífeyrissjóða.