Í mars 2009 voru 98 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 78 fyrirtæki í mars 2008, sem jafngildir tæplega 26% aukningu á milli ára.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot eða 22 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 15 í heild- og smásöluverslun.

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 259 en fyrstu þrjá mánuði ársins 2008 voru gjaldþrotin 175 sem jafngildir 48% aukningu milli ára