Fjöldi farþega í millilandaflugi Icelandair dróst saman um 99-100% í aprílmánuði enda er nær engin eftirspurn eftir flugi og ferðalögum um þessar mundir.

Icelandair segist þó hafa lagt áherslu á að tryggja lágmarksflugsamgöngur til og frá landinu í samstarfi við stjórnvöld. Fjöldi farþega í millilandaflugi hjá Icelandair í apríl endurspeglar þá stöðu sem nú ríkir í alþjóðaflugi vegna COVID-19 faraldursins og þeirra ferðatakmarkana sem nú gilda um allan heim.

Þetta hefur haft mikil áhrif á starfsemi Icelandair Group, hvort sem um ræðir millilanda-, innanlandsflug eða leiguflugstarfsemi. Félagið hefur lagt áherslu á að viðhalda fraktflutningum og hafa þeir dregist mun minna saman en farþegaflutningar á þessum tíma. Þess utan hefur félagið tekið að sér ýmis sérverkefni í frakt- og leiguflugi.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningatölum fyrir aprílmánuð en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair í apríl var um 1.700 samanborið við um 318 þúsund í fyrra sem er 99% samdráttur á milli ára. Heildarframboð minnkaði um 97% á milli ára. Sætanýting félagsins var 13% samanborið við 83,7% í apríl 2019.

Fjöldi farþega hjá Air Iceland Connect var rúmlega 1.970 í aprílmánuði og fækkaði um 91% á milli ára. Framboð minnkaði um 87% og var sætanýting 46,2% samanborið við 69% í apríl 2019. Seldir blokktímar í leiguflugstarfsemi félagsins drógust saman um 75% í marsmánuði. Fraktflutningar drógust minna saman, eða um 37%.

Á helstu flutningaleiðum hefur allt framboð verið að fullu nýtt og samdrætti í farþegaflugi verið mætt með auka ferðum af fraktvélum félagsins til Evrópu og Bandaríkjanna. Þannig hefur félagið náð að tryggja útflutning og verðmæti sjávarafurða og annarra útflutningsvara og flutt inn nauðsynjavörur til Íslands.

Eins og áður hefur verið greint frá hefur Icelandair Group einnig tekið að sér ýmis sérverkefni. Þar má nefna flutning á vörum frá Kína fyrir íslenska heilbrigðiskerfið í samstarfi DB Schenker og  og nú er flogið nær daglega með lækninga- og hjúkrunarvörur frá Kína til Þýskalands fyrir aðila í heilbrigðisþjónustu í Evrópu. Þá eru auk þess nokkur samskonar flug frá Kína til Bandaríkjanna með viðkomu á Íslandi. Þessi verkefni munu koma fram í flutningstölum fyrir maímánuð.