Eigendur 99,5% hlutafjár í Stork hafa samþykkt yfirtökutilboð London Acquisition. Þann 17. janúar síðastliðinn var tilkynnt að 98% eigenda hefðu samþykkt tilboðið. Í samræmi við skilmála yfirtökutilboðsins mun greiðsla á 48,49 GBP á hlut fara fram þann 6. febrúar næstkomandi. Greint er frá þessu á Vegvísi Landsbankans.