Bandaríska matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunnar um einn flokk, úr BBB með stöðugum horfum í BBB+. Þetta kemur fram í frétt á vef Landsvirkjunar .

Mat S&P er sagt endurspegla sterka fjárhagsstöðu fyrirtækisins, en rekstur fyrirtækisins hefur gengið vel þrátt fyrir krefjandi áskoranir í faraldrinum. Undanfarin áratug hefur mikið verið gert til að styrkja fjárhagsstöðu Landsvirkjunar með því að lækka skuldir og minnka fjárhagslega áhættu.

Á sama tímabili var töluverð uppbygging hjá Landsvirkjun en félagið byggði þrjár nýjar aflstöðvar og þá hefur raforkuvinnsla aukist. Með sterkari fjárhagsstöðu gefst einnig aukið svigrúm til að greiða hærri arðgreiðslur til ríkisins, eiganda Landsvirkjunar, en arðgreiðslan árið 2020 nam 10 milljörðum króna samanborið við 1,5 milljarða króna.

„Við hjá Landsvirkjun fögnum þessari hækkun á lánshæfiseinkunn. Frá 2014 hefur einkunnin hækkað um fjóra flokka. Við erum nú með sambærilega einkunn og helstu raforkufyrirtæki á Norðurlöndum, sem við berum okkur saman við. Það er áfangi sem við höfum unnið markvisst að um langa hríð. Þessi bætta fjárhagsstaða gerði fyrirtækinu kleift að takast á við áskoranir heimsfaraldursins með góðum árangri og við gátum stutt við viðskiptavini okkar. Reksturinn hefur tekið vel við sér á þessu ári og mörg jákvæð teikn á lofti. Við horfum björtum augum fram á veginn og ætlum áfram að styrkja fjárhagsstöðu fyrirtækisins til hagsbóta fyrir eigendurna, sem eru landsfólk allt," segir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri Fjármála og upplýsingatækni.