Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1% og er 4.845 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 430 milljónum króna.

Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 1,2%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 0,8% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 0,6%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Föroya banki [ FO-BANK ] hefur hækkað um 0,7%, FL Group [ FL ] hefur hækkað um 0,4%, Glitnir [ GLB ] hefur hækkað um 0,3%, Icelandair [ ICEAIR ] og Teymi [ TEYMI ] hafa hækkað um 0,2%.

Eik banki [ FO-EIK ]  hefur lækkað um 4,2%, Flaga Group [ FL ] hefur lækkað um 2% en félagið gaf frá sér afkomuviðvörun í dag, Kaupþing [ KAUP ] hefur lækkað um 1,8%, Exista [ EXISTA ] hefur lækkað um 1,3% og Bakkavör Group [ BAKK ] hefur lækkað um 1,3%.

Gengi krónu hefur veikst um 1,1% og er 136,6 stig.