Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,02% og er 6.381 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðvakt Mentis. Veltan nemur 2.719 milljónum króna.

Actavis Group hefur hækkað um 1,37%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,15%, Alfesca hefur hækkað um 0,99%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 0,59% og Glitnir hefur hækkað um 0,45%.

Flaga Group hefur lækkað um 3,62%, Bakkavör Group hefur lækkað um 0,99%, Kaupþing banki hefur lækkað um 0,59%, FL Group hefur lækkað um 0,43% og Landsbankinn hefur lækkað um 0,37%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,28% og er 123,5 stig.