Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,41% og er 8.225 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,2 milljörðum króna.

Actavis Group hefur hækkað um 2,07%, Glitnir hefur hækkað um 1,24%, Teymi hefur hækkað um 1,19%, Össur hefur hækkað um 0,93% og Bakkavör Group hefur hækkað um 0,86%.

Fl Group hefur lækkað um 1,01%, Eimskip hefur lækkað um 0,38%, Straumur-Burðarás hefur lækkað um 0,24% og Kaupþing hefur lækkað um 0,18%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,15% og er 113,8 stig.