Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,37% og er 7.578 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 2,9 milljörðum króna.

Actavis hefur hækkað um 2,61%, Atorka Group hefur hækkað um 1,02%, Atlantic Petroleum hefur hækkað um 1%, Glitnir hefur hækkað um 0,75%, Straumur Burðarás hefur hækkað um 0,5% og Exista hefur hækkað um 0,35%.

Eimskip hefur lækkað um 2,7%, Marel hefur lækkað um 0,67%, Mosaic Fashions hefur lækkað um 0,63% og Kaupþing hefur lækkað um 0,1%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,36% og er 120,6 stig.