Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,26% og er 7.457 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 2.616 milljónum króna.

Actavis Group hefur hækkað um 2,84% en í gær birti greinignardeild Glitnis verðmat á félaginu, 365 hefur hækkað um 0,86%, Flaga Group hefur hækkað um 0,42% og Atlantic Petroleum hækkaði um 0,32%.

Exista hefur lækkað um 1,07%, Straumur-Burðarás hefur lækkað um 1%, Landsbankinn hefur lækkað um 0,94%, Alfesca hefur lækkað um 0,84% og FL Group hefur lækkað um 0,67%,

Gengi krónu hefur styrkst um 0,06% og er 120 stig.