Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,09% og er 5.476,94 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Alfesca hefur hækkað um 3,63% en á síðustu sjö dögum hefur félagið hækkað um 8,98% og Kaupþingi banki hefur hækkað um 0,41%.

Tryggingamiðstöðin hefur lækkað um 10% í viðskiptum upp á 70 þúsund krónur en það er engin viðskiptavakt með bréf félagsins.

Dagsbrún hefur lækkað um 1,23% en í gærkvöldi var félaginu tilkynnt um að Samkeppniseftirlitið hafi ógilt samruna Senu og Dagsbrúnar. Dagsbrún mun skjóta ákvörðuninni til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

?Haldi úrskurður Samkeppnisráðs hefur það neikvæð áhrif á rekstur Dagsbrúnar þar sem uppbygging rekstrar samstæðunnar miðaðist við að Sena væri hluti samstæðunnar. Dagsbrún leggur áherslu á miðlun efnis umfram tækniþróun og voru kaupin á Senu liður í eflingu þeirrar stefnu," segir greiningardeild Glitnis.

Straumur-Burðarás hefur lækkað um 1,09% en nú hafa breytingar orðið á eignarhaldi með það að markmikið að lægja ófriðaröldur sem hafa verið innan stjórnar. FL Group er orðinn stærsti einstaki hluthafinn í fjárfestingarbankanum.

Marel hefur lækkað um 0,85% og FL Group um 0,57%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,57% og er gengisvísitalan skráð 133 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.