Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,5% og er 6.978 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðvakt Mentis. Ekkert félag hefur lækkað það sem af er degi. Veltan nemur 7,8 milljörðum króna.

Uppgjör Landsbankans birtist fyrir opnun markaðar og var það yfir spám greiningaraðila.

Mosaic Fashions hefur hækkað um 2,81%, Landsbankinn hefur hækkað um 2,58%, Bakkavör Group hefur hækkað um 2%, Kaupþing hefur hækkað um 1,75% og Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,67%.

Gengi krónu stendur í stað og er 124,1.