Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,08% og er 8.140 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur tveimur milljörðum króna.

Atlantic Petroleum hefur hækkað um 15,2% í 37 viðskiptum, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 0,7%, 365 hefur hækkað um 0,51%, Landsbankinn hefur hækkað um 0,27% og Tryggingamiðstöðin hefur hækkað um 0,27%.

Flaga Group hefur lækkað um 2,34%, Actavis Group hefur lækkað um 0,7%, FL Group hefur lækkað um 0,34%, Teymi hefur lækkað um 0,19% og Atorka Group hefur lækkað um 0,13%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,13% og er 113 stig við hádegi.