Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,10% og er 8.287 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur rúmum þremur milljörðum króna.

Atlantic Petroleum hefur hækkað um 4,72%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,39%, Flaga Group hefur hækkað um 1,06%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 0,59% og Exista hefur hækkað um 0,3%.

Föreya banki hefur lækkað um 1,57%, Össur hefur lækkað um 1,36% FL Group hefur lækkað um 1,01%, Atorka Group hefur lækkað um 0,98% og Alfesca hefur lækkað um 0,77%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,07% og er 114,9 stig.