Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,35% og er 5.272,11 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni og nemur veltan um tveimur milljörðum.

Landsbankinn hefur hækkað um 0,97%, Marel hefur hækkað um 0,68%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 0,60% og Actavis Group hefur hækkað um 0,32%.

Atlantic Petroleum hefur lækkað um 4,10%, FL Group hefur lækkað um 1,29%, Avion Group hefur lækkað um 0,92%, Kaupþing banki hefur lækkað um 0,85% og Dagsbrún hefur lækkað um 0,73%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,60% og er gengisvísitalan 128,2 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.