Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,3% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:10 í 4.222 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga en Atlantic Patroleum [ FO-ATLA ] hefur rokið upp eftir að tilkynnt nú undir hádegi að félagið hefði fundið olíu í Atlantshafi.

Velta með hlutabréf er um 770 milljónir. Þar af eru rúmar 320 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ], rúmlega 200 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og um 170 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan heldur áfram að styrkjast frá því í morgun og hefur nú styrkst 1,3% frá opnum gjaldeyrismarkaða en gengisvísitalan er nú 156,6 stig.