Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,3% og er 4.193 stig við hádegi. Gengi krónu hefur veikst um 0,9% og er 162 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Velta nemur rúmlega milljarði króna.

Bakkavör leiðir vagninn með 2,7% hækkun, líkt og sjá má á töflunni hér til hliðar.

Litið til Norðurlandanna þá hefur danska vísitalan OMXC lækkað um 0,2%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 1,3% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 0,2%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.