Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,1% og er 4.897 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 3,4% og er 148,8 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Styrkingu krónu má rekja til frétta af gjaldeyrisskiptasamningi Seðlabanka Íslands við norrænu Seðlabankana.

Breska vísitalan FTSE100 hefur hækkað um 1,2%, danska vísitalan OMX hefur hækkað um 0,9%, norska vísitalan hefur hækkað um 1,6% og sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 1%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Veltan á hlutabréfamarkaði nemur 7,2 milljörðum. Stærstu einstöku viðskiptin eru tveggja milljarða króna utanþingsviðskipti með bréf Glitnis.

Bakkavör Group [ BAKK ] hefur hækkað um 6,7%, Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 4,6%, FL Group [ FL ]  hefur hækkað um 4%, Exista [ EXISTA ]  hefur hækkað um 3,5% og Glitnir [ GLB ] hefur hækkað um 2,3%.

Century Aluminium [ CENX ] hefur lækkað um 5,7%, Skipti hefur lækkað um 5,1% og Eimskip [ HFEIM ] hefur lækkað um 0,5%.