Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 633 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í gær en hefur klifrað eilítið upp á við í morgun en þar munar mestu um 11% hækkun Bakkavarar.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Aðeins tvö félög hafa hækkað í morgun, Bakkavör og Össur.

Velta með hlutabréf er tæpar 225 milljónir króna en þar af eru 155 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir tæpar 38 milljónir króna með bréf í Össur og rúmar 28 milljónir króna með bréf í Bakkavör.