Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,63% við hádegi og er 5.5389,09 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Sérfræðingar sem Viðskiptablaðið ræddi við segja að þær hækkanir sem átt hafi sér stað á hlutabréfamörkuðum á Norðurlöndunum hafi jákvæð áhrif á íslenska hlutabréfamarkaðinn.

Landsbankinn hefur hækkað um 2,50%, Bakkavör Group hefur hækkað um 1,37%, Glitnir banki hefur hækkað um 1,18%, Össur hefur hækkað um 0,95% og Kaupþing banki hefur hækkað um 0,68%.

Marel hefur lækkað um 1,46% og Straumur-Burðarás hefur lækkað um 0,58%.

Gengi krónunnar hefur styrkst um 0,44% og er gengisvísitalan 0,44% stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.