Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,2% og er 4.119 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Gengi krónu hefur veikst um 0,5% og er 163,6 stig.

Veltan nemur um 600 milljónum króna.

Century Aluminum [ CENX ] birti uppgjör í gærkvöldi og hefur hækkað um 2,2%, líkt og sjá má á töflunni hér til hliðar.

Litið til Norðurlandanna: Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 1,2%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 0,7% og sænska vísitalan hefur lækkað um 0,6%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.