Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,57% og er nú 6.311, samkvæmt upplýsingum Kauphallarinnar

Velta Kauphallarinnar var 5.724 milljónir króna á hádegi.

Dagsbrún hækkaði um 3,85%, FL Group um 2,56%, Icelandic Group um 1,28%, Straumur-Burðarás um 1,15% og Bakkavör um 1,03%.

Sláturfélag Suðurlands lækkaði um 5,26% og Actavis um 0,15%

Gengisvísitala krónunnar veiktist um 0,07% og er nú 122,47.