Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,89% og er 5.407,03 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Ekkert félag hefur lækkað.

Dagsbrún hefur hækkað um 3,39%, FL Group hefur hækkað um 1,72%, Kaupþing banki hefur hækkað um 1,38%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 1,33% og Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,17%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,11% og er 130,2 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.