Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,94% og er 6.296 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Veltan nemur 2.828 milljónum króna.

Dagsbrún hefur hækkað um 6,05%, FL Group hefur hækkað um 3,08%, Landsbankinn hefur hækkað um 2,31%, Össur hefur hækkað um 1,2% og Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,16%.

Ekkert félag hefur lækkað við hádegi.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,35% og er 123 stig við hádegi.