Dregið hefur úr hækkun Úrvalsvísitölunnar [ OMXI15 ] frá því í morgun en vísitalan hefur nú hækkað um 0,1%. Um tíma hafði Úrvalsvísitalan hækkað um 0,8% í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 1,2 milljarðar. Þar ef eru um 310 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], 208 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og 250 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ].

Krónan hefur nú veikst örlítið eftir að hafa styrkst í morgun. Veiking krónunnar nemur þó aðeins 0,1% frá því markaðir opnuðu í morgun.