Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 1,4% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:10 í 4.303 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir en aðeins félag, Föroya banki [ FO-BANK ] hefur lækkað það sem af er degi á meðan Eik banki [ FO-EIK ] rokhækkar.

Velta með hlutabréf er um 1,8 milljarðar. Þar af eru tæpar 800 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 300 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], um 270 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] og um 230 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst nokkuð í morgun eða um 0,7% en gengisvísitalan er nú 157,6 stig.