Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% og er 4.482 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.  Gengi krónu hefur veikst um 0,5% og er 154,8 stig.

Eimskipafélagið [ HFEIM ] tilkynnti um í morgun að það hafi afskrifað Innovate Holding með öllu en bókfærtvirði þess var 74,1 milljónir evra eða 8,8 milljarðar króna. Afskriftin nemur 18% af eiginfé félagsins. Eimskipafélagið hefur lækkað um 12,7% það sem af er degi. Það sem af er ári nemur lækkunin 50%.

Teymi [ TEYMI ] hefur einnig fallið mikið eða um 11,1%. Félagið hefur lækkað um 20,7% á síðustu sjö dögum og 58% það sem af er ári.

Danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 0,2%, norska vísitalan OBX hefur hækkað um 0,6% og sænska vísitalan OMXS stendur í stað.