Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,04% og er 8.126 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,6 milljarði króna.

Atlantic Petroleum hefur hækkað um 9,28%, Eimskip hefur hækkað um 2,22% en félagið hefur hækkað um 23,95% á fjórum vikum, Icelandair Group hefur hækkað um 1,07%, 365 hefur hækkað um 0,77% og Exista hefur hækkað um 0,75%.

Actavis Group hefur lækkað um 0,83%, Teymi hefur lækkað um 0,57%, Flaga Group hefur lækkað um 0,46%, Bakkavör Group hefur lækkað um 0,46% og Landsbankinn hefur lækkað um 0,13%.

Gengi krónu styrktist um 0,24% og er 113,2 stig.