Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,5% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 3.947 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,1% í gær og hóf að lækkað aftur strax við opnun markaða í morgun. Örlítið hefur þó dregið úr þeirri lækkun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en ekkert félag hefur hækkað nú á hádegi en í morgun hafði Föroya banki [ FO-BANK ] hækkað um tíma.

Velta með hlutabréf er um 1,1 milljarður. Þar af eru rúmar 450 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 360 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og tæpar 140 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 1,5% í morgun og er gengisvísitalan nú 169,1 stig.