Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur lækkað um 4,7% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 892 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Hin nýja Úrvalsvísitalan, sem sett var upp í 1000 stigum um áramót hefur nú í fyrsta sinn náð niður fyrir 900 stig.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en líkt og síðustu tvo daga leiðir Straumur lækkanir dagsins en félagið hefur lækkað um 30,1% í morgun.

Straumur hefur nú lækkað um 46,5% í þessari viku.

Velta með hlutabréf er tæpar 215 milljónir króna en þar af eru rúmar 80 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir rúmar 79 milljónir króna með bréf í Marel  og rúmar 56,5 milljónir króna með bréf í Straum.