Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,7% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 349 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,9% á föstudaginn og 5,8% í síðustu viku. Þá hélt lækkunin áfram strax við opnun í morgun en vísitalan hefur þó lítillega tekið við sér frá kl. 11 í morgun þegar hún hafði lækkað um tæp 2%.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Exista og Straumur leiða lækkanir dagsins og hafa lækkað um 33,3% og 6,2%.

Velta með hlutabréf er um 190 milljónir króna en þar af eru rúmar 85 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir rúmar 63 milljónir króna með bréf í Straum og rúmar 37 milljónir króna með bréf í Marel.