Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 376 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,1% gær og hélt áfram að lækka við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en aðeins eitt félag, Marel hefur hækkað í morgun.

Það sem af er degi er heildarvelta með hlutabréf tæpar 126 milljónir króna en þar af eru sléttar 45 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir tæpar 39 milljónir króna með bréf í Össur og rúmar 34 milljónir króna með bréf í Straum.