Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1,1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 4.127 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í gær og hóf að lækka enn frekar strax við opnun markaða í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Í morgun hafði Eik banki [ FO-EIK ] hækkað eitt félaga en eins og sjá má hefur staðan örlítið breyst þar sem félagið leiðir nú lækkanir dagsins.  Rétt er þó að vekja athygli á því að velta með bréf í félaginu er aðeins um 250 þúsund krónur í sex viðskiptum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Velta með hlutabréf er um 1,7 milljarðar króna. Þar af eru rúmar 540 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 510 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 275 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] og rúmar 220 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst um 0,2% í morgun og er gengisvísitalan nú 160,9 stig.