Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,4% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 383 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,5% gær og stóð við lok markaða í 389 stigum. Þá hélt hún áfram að lækka við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Exista hefur hækkað um 80% í morgun í viðskiptum fyrir um eina og hálfa milljón króna.

Rétt er þó að hafa í huga að Exista hefur lækkað um 99,5% frá áramótum en félagið lækkaði verulega í gær og í fyrradag eftir að viðskipti voru heimiluð með félagið á ný í fyrsta sinn í rúma tvo mánuði, eða eftir að Fjármálaeftirlitið stöðvaði viðskipti með öll fjármálafyrirtæki í Kauphöllinni þann 6. Október s.l.

Það sem af er degi er heildarvelta með hlutabréf tæpar 180 milljónir króna en þar af eru rúmar 76 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir rúmar 52 milljónir króna með bréf í Straum og um 44 milljónir króna með bréf í Össur.