Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 4.240 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga. Þó svo að Úrvalsvísitalan hafi lítið  breyst frá því í morgun hefur taflan breyst nokkuð en fyrir um klukkustund höfðu aðeins tvö félög hækkað.

Velta með hlutabréf þó ekki mikil, aðeins um 220 milljónir. Þar af eru rúmar 80 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæpar 50 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], um 45 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] og rúmar 25 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan stendur enn í stað frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 158,4 stig.