Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1,7% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 3.832 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,7% í gær og hefur lækkað jafnt og þétt frá opnun í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Alfesca [ A ] hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er tæpir 2,4 milljarðar. Þar af eru rúmlega 900 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], rúmar 530 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og rúmar 420 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst í morgun um 0,9% og er gengisvísitalan nú 171,4 stig og hefur gildi gengisvísitölunnar aldrei verið hærra.