Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,4% og er 8.328 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur um tíu milljörðum króna.

Exista hefur hækkað um 4,46%, FL Group hefur hækkað um 3,78%, Atlantic Petroleum hefur hækkað um 2,75%, Straumur hefur hækkað um 2,72% og Landsbankinn hefur hækkað um 2,63%.

Össur hefur hækkað um 0,94% og Foroya banki hefur hækkað um 0,88%.

Gengi krónu hefur styrkst um 1,74% og er 120,1 stig.