Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,35% og er 7.196 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 10.989 milljónum króna.

Exista hefur hækkað um 5,49%, Glitnir hefur hækkað um 3,54%, Össur hefur hækkað um 1,85%, Kaupþing hefur hækkað um 1,57% og Bakkavör Group hefur hækkað um 1,22%.

Flaga Group hefur lækkað um 0,83%, Icelandair Group hefur lækkað um 0,73%, Icelandic Group hefur lækkað um 0,68%, Teymi hefur lækkað um 0,33% og Marel hefur lækkað 0,14%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,2% og er 121,2 stig.