Það er allt með kyrrum kjörum á hlutabréfamarkaði. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,1% og er 4.897 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,6 milljarði króna.
Líf og fjör er þó á skuldabréfamarkaði þar sem veltan nemur 33,4 milljörðum króna.
Helstu markaðir í Evrópu hafa lækkað það sem af er degi. Þrátt fyrir það hefur norska vísitalan OBX hækkað um 1,7%.