Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,16% og er 5.358,57 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Veltan nemur um sjö milljörðum, sem er mikil breyting frá hádeginu í gær, þegar hún nam um 89 milljónum króna.
Bakkavör Group hefur hækkað um 4,08% en Exista, stærsti hluthafi félagsins, keypti í félaginu fyrir um 4,5 milljarða í morgun.
Actavis Group hækkaði um 0,93%, Atorka Group hækkaði um 0,86%, Glitnir hækkaði um 0,57% og Alfesca fyrir um 0,48%.
Flaga Group lækkaði um 1,86%, Avion Group lækkaði um 0,93%, Marel lækkaði um 0,64%, Straumur-Burðarás lækkaði um 0,63% og Landsbankinn.
Gengi krónu hefur styrkst um 0,27% og er 124,71 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.